Archive for the ‘Uncategorized’ Category

Það kom aðþví

Tuesday, September 18th, 2007

Já tíminn er kominn þar sem Sindri og Sandra fara að detta of fá kúlur. Það hefur nú verið í nokkrun tíma en það kemur núna þar sem þau eru farinn að príla upp á allt og detta niður. Eins eru þau farinn að hlaupa frekar hratt og ekki alveg að ná því að stjórna ferðinni eins og sjá má :D
Sandra Sandra Sandra Sindri

Sindri þarf nú að fá að vera með líka :P

Það hlaut að koma að því að einhver fékk meira en smá mar, Sandra datt á kannt á skáp. Við bara settum svona smá plástur til að reyna að loka saman skurðinum. Sem betur fer opnaðist þetta ekki og blæddi annars hefði þurft að sauma hana.

Já það er nóg að gera hjá þeim Tvibbum og mömmu heima til því Pabbinn í fullri vinnu og farinn í skólan loksins. Það á að klára núna að taka MCSA eða eins og þetta heitir Microsoft Certified Systems Administrator hjá Rafiðnaðarskólanum. Þetta er bara fjörugt nám og gaman að fara yfir þetta allt saman. Við erum eins og er í XP áfanganum og er hann nú nokkuð auðveldur eins og er því maður hefur nú unnið við þetta síðan það kom út. En maður er nú farinn að riðga aðeins því maður er búinn að vera keyra Vista núna eftir að það kom út í Beta. Vá hvað það er miklu flottara og betra þó svo að það sé alltaf svona smáhlutir sem fara í taugarnar á manni en eftir að maður venst öllu þessu nýja þá getur maður ekki hugsað sér að fara til baka.

Jæja nóg í bili. Maður verður að hafa eitthvað til að tala um í næsta bloggi sem verður einhvertíman 2008 ef ég þekki þetta rétt ;)

Kv
Drezi, Thelma og La Twins

Farið í bað

Monday, May 14th, 2007

Jæja þetta er í fyrsta skiptið sem þú fara ein í bað.  Við höfum bara farið í bað eða sturtu með mömmu eða pabba en núna fengum við að fara ein saman í bað.  Það var ekki mikið vatn í baðinu þannig að þetta var allt í lagi :D   Þetta var alveg rosalega gaman og við öskruðum og alveg bursluðum svo mikið að það var allt á floti inni á baði.  Þetta þurfum við að gera oftar :P

Svo var Sindri Logi að finna upp á túngunni sinni núna.  Hann er að ulla á fullu og toga í hana einnig er rosa findið að horfa á hana í spegli.  Svo eru þau bæði að prófa röddina á fullu og er öskrað mikið þessa daganna bæði af kæti og gráti.

 Svo fengum við lánuð studíó ljós fyrir myndavélina:

Tvibbar í Studio 2007 Þetta var svo gaman.  Þú voru alveg á útopnu og ekkert smá erfitt að mynd þessi dýr.  Þau voru svo snögg að fara af stað og það náðist ekki nema einn rammi í einu áður en maður þurfti að stökkva til að stilla þeim upp aftur.  Maður verður að vera þokkalega þolinmóður :D

 

Jæja þetta er gott í billi.  Skrifa vonandi fljótt aftur og set in meira af myndum.

Núna er kominn tími til að láta heyra aðeins í sér.

Monday, May 14th, 2007

úffff… það eru kominir all margir mánuðir síðan ég skrifaði síðast hérna. Það er nú allt búið að vera á fullu líka bæði í vinnunni og heima við. Tvibbarnir gera ekkert nema stækka og læra nýja hluti á fullu.

Það helsta er að vinnan heldur áfram að stækka og stækka held að við séum orðin um 180 núna með Akrueyri, Atlanta og Shanghai skriftofunum. Fyrir um rúmlega ári síðan vorum við um 60 :D þetta er algert rugl bara. Álagið eykst og eykst á okkur þarna í IT deildinni og ekki margir nýjir að koma inn, en eigum von á einum núna á næstunni. Svo er nú ég að fara í feðra orlof á næstunni :S hvernig fer þá….

Tvibbarnir eru á fullri leið að fara fermast ;) þau eru orðinn svona xx á hæð og um 8 kg. Þetta gerist svo hratt, maður er ekki að trúa því að þeir séu að verða 8 mánaða núna.
Svona til að fara yfir söguna aðeins þá hefur allt svona gegnið nokkuð vel það sem var af 2006, þau voru alveg óvenjulega hress og kát eins og alltaf. Það koma jú þessir tímar sem þau eru svöng og þreytt þannig að það getur tekið smá á að vera með þau tvö grátandi ef maður er einn með þau. Sem betur fer hefur Thelma haft foreldra sína til að hjálpa sér á daginn þegar mest gengur á.
Svo kom desember og fystu jólinn gengu í garð. Það var aldeilis kátt á aðfangadag hjá þeim þau fengu góðan svefn fyrir matinn og sátu svo kát og hlægjandi allt kvöldið til svona að ganga 22.00. Það var margt um manninn líkja hjá okkur, við fengum Ömmur og Afa og Langömmu Karen til okkar í mat. Það vildu auðvitað allir vera hjá þeim á fyrstu jólunum og sjá þau í jólasveina búningunum sem við keyptum á þau :D þau eru svo mikil krútt. Maður bíður bara eftir því að þau viti hvað er að gerast og þá verður sennilega fjör á bænum.
Ekki var þetta svona kátt lengi því á annan í jólum fékk Sandra Lísa mikinn hita og kvef og var hitinn að fara vel yfir 39°c. Sindri Logi fékk þetta svo í kjölfarið nema hann var að fara upp í 40°c hita og miklu verri. Við ákváðum að fá lækni á staðinn og þá var hann greindur með eyrnabólgu :( þannig að hann fékkk sýklalyf við því. Ekki var það nú betra þar sem littla greið fékk ofnæmi fyrir þvi og eftir 3 daga kominn með útbrot um allan líkaman. Þannig að við urðum að hætta að gefa honum lyfið,lækirinn vildi svo að hann myndi bara reyna ná þessu sjálfur úr sér. En ekki gekk það eins og áður og fékk hann aftur mikinn hita og það vesta var að Sandra var kominn með hita líka aftur og mjög slöpp. Það versta var að ég var líka með bullandi hita, beinverki, ógleði, þreytu og hvað annað sem hægt er að fá þegar maður er veikur. Málið var að ég var sendur til London að setja nýtt IBM Blade í samband til að gera smá prófanir á þvi og tók ég það með mér í handfarangri í flugið og setti það upp sama dag og flaug heim daginn eftir. Nema hvað ég var svona að verða smá kvefaður og í fluginu næ ég ekki að þrýstijafna eyrun og fékk þessa rosalegu hellu. Ég var með kanski svona 40% heyrn og var Thelma að verða vitlaus á því að tala við mig :D Þannig að eftir að ég er búinn að liggja og sofa í 20 tíma þá förum við öll til læknis. Þá kemur í ljós að Sindri er enn með erynabólgu og Sandra Lísa hefur fengið það líka. Þannig að þau fá aftur sýklalyf, 3 hans Sinda og 2 hjá Söndru. Svo var komið að mér og þá kemur það í ljós að ég er einnig með eyrnabólgu :P þetta gat ekki verið fyndnara, þannig að Pabbinn var líka settur á slyklalyf. Aumingja Thelma að vera með okkur 3 öll slöpp og ómöguleg…. ég sofandi mest og þau svona mikið grátandi og erfitt með að sofa.
Jæja þetta svona slóg á okkur öll, nema í dag fórum við til háls, nef og eyrna sérfræðings og þá kom það í ljós að Sandra Lísa og ég erum laus við eyrnabólguna en Sindri Logi er enn með smá bólgur. Læknirinn kíkti svo aðeins á mig betur og sá að ég er svo stýflaður í nefinu að hann átti ekki til orð, og mér sem fannst ég vera svo góður :D … ég á að fara á smá stera kúr (Flixonase) og svo koma til hans aftur eftir mánuð.

Jæja vonum að þetta lagist allt saman. Þau allaveganna eru mjög góð núna og alveg eru að stækka og læra nýtt á hverjum degi það er alveg rosalega gaman að fylgjast með þeim. Þau eru farinn að skríða, setjast upp, biðja um að láta taka sig upp og margt meira. Svo er bara svo gaman aðþví hvað þeim finnst gaman að hvort öðru. Hérna er smá video af þeim: Tvibbar2007

Back to the Future

Wednesday, September 27th, 2006

Ég skrapp til mömmu og pabba í kvöld og vitir menn kemur hún mamma ekki með nokkrar gamlar og góðar myndir til mín. Þetta eru myndir frá því að ég var á leikskóla um 4 ára, Flataskóla í 4GS sem var svona um 8 ára og svo eina góða frá 1985 þegar mamma vildi að ég myndi verða módel :-P nei þetta var þegar bróði minn fermdist og fór í mydatöku og fannst sennilega ljósmyndaranum ég svona módel legur :D

Alveg magnað hvað ég man eftir mörgum á þessari mynd. Það vour bara 2 sem ég man ekki eftir og þurfi að kíkja aftan á til að muna hvað 3 hétu en man vel eftir þeim.  Svo er magnað að hann Gunni er í gömlu hundunum sem hittast alltaf á vetrar daginn fyrsta og hella í sig af gömlum vana, einnig hann Hrafnkell að ég er að vinna með honum núna í CCP :D
4 ára

Uppi frá vinstri: Laufey, Rakel, Hrafnkell, Fjóla, Gunni, Jói, Unnur og Sigrún.
Niðri frá vinsti: Ragnheiður, Linda, Þórunn, Ásthildur, Ella Sigga, Inga Birna, Óli Haukur og Gauti.
Kennarar: Jóna og Katrín

Svo erum við Inga Birna, Ásthildur og Ella Sigga hérna:

Krútt

Hr. 1985 :-P Vá hvað ég hefði getað meikað það sem módel!
Mr 1985

Já og svo er önnur mynd hérna sem ég er nokkuð hissa yfir hvað maður er með nöfnin á hreinu. Á þessari var ekki búið að setja nöfnin á þannig að maður hafði ekkert til að svindla. En ég man öll:
4 GS

Kennari: Guðríður
Uppi frá Vinstri: Svenni Reynisson, Einar Mar, Eiríkur Baldur Þorsteinsson, Guðmundur Kárason, Andrés Birkir Sighvatsson, Lúðvík Jónasson, Guðfinnur Sölvi Karlsson.
Miðja frá vinstri: Ragnar Jónasson, Jóhannes, Guðrún Kvaran, Ragna Kvaran, Sigrún, Ásthildur Björnsdóttir, Guðlaugur Á????, Rúnar Páll Sigmarsson.
Niðri frá Vinstri: Eva Willardsen, Eva Úlla, Inga Birna Eiríksdóttir, Sigrún Þorsteinsdóttir, Tryggvi Örn Valsson, Brynjóflur Jón Baldursson, Bjarki Björgúlfson, Selma Björnsdóttir.

Alveg magnað hvað maður man mikið af nöfnunum enn eða vona það gæti verið eitthvað vitlaust en endilega sendið mér leiðréttingar eða viðbætur sem ég hef gleymt.

Það er búið að vera mikið að gera síðustu daganna.

Wednesday, September 27th, 2006

Jæja þá er komið mánuður frá síðasta bloggi og það er eins og það séu svona 3 daga síðan.  Það er allt búið að vera á fullu að gera síðasta mánuðinn.  Ég ætla svona að reyna stykkla á stóru:

Ég var sendur til London að vinna.  Það þurfti að uppfæra svona hinar og þessar vélar úti í og koma domaininu yfir á Windows 2003.  Ég fór út á mánudegi eld snemma og var lentur um 11.00 á Stansted.  Þar fékk ég þennan fína Bens til að keyra vitlausu meginn á veginum, vá hvað það er skrítið en gekk bara alveg rosalega vel.  Það hjálpaði mikið að hafa hann TomTom við hendina til að komast á milli staða.  Ég fór strax upp á hótel til að tékka mig inn en þegar ég átti að strauja Vísa kortið fyrir tryggingu þá mundi ég ekki PIN númerið.  Ég fékk nýtt kort í ár og mundi bara gamla númerið :S  Jæja það er gott að það þurfti ekki fyrir tryggingunni, en ég var í vondum málum þar sem ég var ekki með 1 pund á mér til að kaupa eitthvað að borða né neitt að borða…  Well ég hringdi í hana Önnu Jónu og auðvitað reddaði hún mér nýju PIN en ég fékk það ekki fyrr en á miðvikudeginum.  En það borgar sig stundum að vera sluxi og gera ekki allt alveg strax.  Ég var með nokkra dollara í veskinu síðan ég var á GDC í San Jose.  Well það var nóg fyrir McDonalds :-P
Ég tók því rólega á þriðjudeginum og hætti snemma til að hitta vini mína í London þau Hrund og Tolla í China Town að borða.  Eftir að hafa borðað fínan kínverskan fjölmáltíðar mat fórum við á ComedyStore og sáum The Cutting Edge með Martin Coyote, Andy Parsons, Paul Thorne, Steve Gribbin, Ian Stone og Junior Simpson (nei hann er ekki úr The Simpsons fjölskyldunni hann er svartur).  Þeir voru alveg magnaðir.  Þetta er eiginlega alveg must að fara á The Comedy Store ef maður er í London, þetta er í 3 sinn sem ég fer þarna og það hefur alltaf verið frábært að fara þarna.  Well þegar við komum út þá rákumst við á eingan annan en Eric Idle hann var vel í glasi þannig að maður var ekkert að trufla hann á göngu þarna um miðbæ London.

Well svo bar bara back to work og það var bara unnið frá svona 9.00 til svona á milli 23.00 og 06.00.  Stebbi kom þarna út svo til að hjálpa mér á Miðvikudeginum og það var bara unnið út í eitt.

Þegar ég kom heim á Laugardagskvöldið var ekkert smá gaman að sjá tvibbana eftir svona langan tíma í burtu, þau höfðu stækkað þó nokkuð á þessari rúmu viku.  Enda voru þau að þyngjast um svona 300 g á viku.  Svo var bara að taka frí í vinnunni næstu vikuna og taka til heima.  Við vorum að fara skýra 14 Sept sem er fimmtudagur en það var valið afþví að ég var skýrður þann dag og Amma Þorbjörg heitin átti afmæli þennan dag.  Það var poolað og svitnað alla vikunna.  Við vorum ekki alveg búinn að koma okkur fyrir í húsinu þar sem við vorum bara búinn að vera flutt inn í viku þegar Thelma fór upp á sjúkrahús að fæða littlu krílinn.  Svo eftir að þau komu var svona ekki mikið gert… :D   En þetta heppnaðist bara nokkuð vel því við gengum Mömmu og Pabba ásamt tengdó að koma og hjálpa til við að taka upp út kössum og raða upp, hengja upp myndir, setja upp ljós og spegla, pússa rúður, mála …………. and the list goes on :-P

Þá var komið að því að skýra þessi littlu kríli.  Við vorum búinn að finna nöfnin á þau en vorum ekki alveg búinn að setja það niður 100% nema hvað á þriðjudeginum áttum við að skila þeim inn til bakaranns því hann þurfti að setja það á kökuna.  Þannig að á leiðinni í bílnum var það ákveðið að skýra þau Sindri Logi og Sandra Lísa.  En daginn eftir fékk Thelma smá bakþanka að við værum að gera eitthvað vitlaust og þetta væri alveg ómögulegt.  Bara smá kvíða kast en hún komst fljótt yfir það og þegar athöfninni var lokið vorum við alveg rosalega ánægð með nöfnin á þeim.  Við fengum náttúrulega fjölskyldu prestinn Bolla Pétur Bollason til þess að mæta og skýra, hann hefur nú þegar gift 2 pör, séð um 2 jarðarfarir og skýrt 3 börn í fjölskyldunni.  Hann er alveg frábær prestur svo léttur og segir brandara og vill að það sé fjör í athöfninni, ekki þetta sterilt umhverfi þar sem maður má varla hósta.  Svo var bara komið heim og smá veirsla haldinn.

Eftir þessa viku var haldið áfram á sömu braut vinna, skipta á bleyjum, svæfa, skipta á bleyjum, vinna, skipta á bleyjum, skipta á bleyjum og vinna.  Það var rosalega mikið að gera í vinnunni enda einn hættur hjá okkur sem var nýráðinn inn til að leysa mig mikið af hólmi við uppsettningar á vélum og notenda þjónustu.  Svo voru menn í fríi og við að bæta við fólki í fyrirtækið alveg á fullu.  Maður þarf að fara lengja þennan sólarhring eða stytta svefntíman sinn en það er svo sem ekki option.

Jæja þetta var nú svona það helsta sem hefur gerst síðasta mánuðinn og mun ég reyna að hafa ekki aftur mánuð á milli blogga.

Kveðja The Mökk