Archive for the ‘Massabolti’ Category

Já það var farið MassaGolf

Tuesday, August 22nd, 2006

Jæja þá var komið að því að fara í MassaGolf 2006. Þetta var svona eitthvað erfitt í fæðingu en svo tók Arnar B sig til og bara setti niður föstudaginn. En það voru ekki allir til í að fara þá og féll þetta næstum niður. En Valli hótaði öllu illu ef þetta myndi detta niður og 8 manns þorðu ekki annað en að mæta. Fyrsta holl var Andres, Addi, Raggi og Valli. Þegar fyrsta holl var komið á 2 holu kom annað holl inn, Alli, Kjarri, Eiki og Arnar B. Farið var 18 holur nema Alli hann hafði ekki þol í meira en 9 :D
Þetta var bara hinn besti dagur þar sem veðrið var alveg frábært, ekki of heitt né of kalt. Einnig er þessi völlur alveg frábær, hann er mjög skemmtilegur þar sem hann er í með á sem rennur í gengum hann og það eru hverir þarna. Flestum gekk bara nokkuð vel.
Skor:
Addi: 99
Raggi: 112
Andres: 112
Valli: 119

Seinna hollið var ekki alveg með skorið uppi þegar við töluðum við þá. Held að þeir hafi bara ekki verið eins góðir og við :-P Ég var allaveganna að spila ágætlega þarna nema hvað upphafs höggin varðar. Sem er öfug meðan við það sem ég var að gera síðast þegar við vorm þarna að steggja Ragga. Þá voru það upphafshöggin sem voru í lagi en var að taka 5 – 6 pútt. Núna var ég að slá í boga til hægri alltaf nema kanski á síðustu 3 brautunum, en þá fór ég að taka eftir því að ég var að standa eitthvað öðruvísi en vanalega. Maður þarf að fara til kennara til að reyna verða eitthvað berti í þessu sporti.