Archive for August, 2006

Já það var komið að því að halda fyrsta Pabba daginn

Saturday, August 26th, 2006

Það hlaut að koma að því að mamma þurfti að fara út og skilja Tvibbana eina með pabba. Thelma fór í gæsa patry í dag þar sem Jóhanna er að fara gifta sig. Mamma fór út um 10 og þurfti pabbi núna bara sjá um okkur alveg einn. Þetta gekk bara vel því hann er svo klár :D . Hann fór með okkur í bakarí og svo aðeins í heimsókn bara. Svo hringdi mamma um 14.00 og vildi þá tæma tútturnar þannig að hann þurfti að koma okkkur þangað.

Svaka fjör í Hvítá með CCP

Saturday, August 26th, 2006

Það var farið í óvissu ferð með CCP í gær. Dagurinn bara tekinn snemma eða byrjað með alsherja fundi þar sem tala var um svona það sem er að gerast í CCP í dag og það sem er framundan. Mjög spennandi hlutir að gerast þessa daganna í CCP. Allt fyrirtækið að sækka og breyða út arma sína til fleirri landa.

Svo var farið í myndatöku úti á götu. Það var búið að spreyja CCP á götunna og áttum við að dreifa okkur á stafina og stafa CCP á meðan ljósmyndari tók mynd af okkur ofan af þaki. Þessi mynd heppnaðist mjög vel og þarf ég að redda henni hingað inn. Annars leið manni eins og maður væri að vinna í banka :P

Svo var farið upp í rútur og haldið á Drumboddstaði þar sem Bátafólkið var en Arcticrafting er komið með allt rafting held ég bara. Þeir eru líka alveg frábærir. Farið var niður ánna og vorum við með 6 eða 8 báta úti enda um 80 manns minnir mig CCP Raftingsem voru þarna. Þetta byrjaði nokkuð vel fanst mér þar sem 3 duttu út úr báttnum í öðrum flúðunum og fór báturinn nokkuð stjórnlaust niður þá :D Sennilega eitt skemmtilegasta móment sem ég hef verið í þegar verið er í flúðum, Fightþær eru ekkert spec annars. Maður á eftir að prófa almennilega á til að svona segja betur til um þessar blessuðu flúðir.

Næst var farið og hoppað niður af klett út í ánna. Það var þokkalega skemmtilegt og held ég að flest allir hafi látið sig flakka niður og flestir nokkrum sinnum. Merkilegt hvað áin var heit. Þetta er nú 4 sinn sem ég fer í hvítá og hef ég lent einusinni þegar hún var svo köld að maður gat bara ekki farið út í hana en það var um 18 stiga hiti þarna og búið að vera gott veður síðustu daga. Það getur bara verið 3 – 4 gráðu munur á ánni ef það er búið að vera gott veður.

Þegar búið að var að hoppa út í ánna þá byrjaði vatnsslagurinn. FloatingÉg var í fysta bátnum að kára flúðirnar og vildi ég byrja á þvi að róa upp að næsta báti sem koma og reyna að henda mér yfir í bátinn og taka einhvern með mér útí. En ég lenti ferkar illa og mér var kastað út fyrir borði. Svo driftaði ég í burtu frá bátunum og komst ég ekki upp í bát næstu nokkrar mínúturnar. En það skiput nú ekki miklu máli þar sem ég var sennilega meira úti í ánni en í bátnum þarna síðustu kílómetrana niður ánna. Enda fékk ég svaka kulda krampa í kálfanna og á tímabili gat ég ekki hreyft kálfan vinstrameginn.

Þegar við komum upp út ánni var manni frekar kalt. Reyndi að fara í kuldapottinn en hann var um 27 gráður og fannst mér hann kaldari en áinn. Það var nú bara betra að fara og klæða sig. Þegar allir voru komnir í fötinn þá var haldið niður á Stokkreyri og borðaðir humarhalar. Frekar góðir humrar og við fengum svo mikið að við gátum ekki klárað þá. mmmmmmmmmmmmm

Svo var haldið heim á leið og á meðan sumir héldu áfram að djamma þá fóru hinir heim að sofa, djö er maður orðinn gamall….. uuu eða ábyrgur faðir ;-)

Já það var farið MassaGolf

Tuesday, August 22nd, 2006

Jæja þá var komið að því að fara í MassaGolf 2006. Þetta var svona eitthvað erfitt í fæðingu en svo tók Arnar B sig til og bara setti niður föstudaginn. En það voru ekki allir til í að fara þá og féll þetta næstum niður. En Valli hótaði öllu illu ef þetta myndi detta niður og 8 manns þorðu ekki annað en að mæta. Fyrsta holl var Andres, Addi, Raggi og Valli. Þegar fyrsta holl var komið á 2 holu kom annað holl inn, Alli, Kjarri, Eiki og Arnar B. Farið var 18 holur nema Alli hann hafði ekki þol í meira en 9 :D
Þetta var bara hinn besti dagur þar sem veðrið var alveg frábært, ekki of heitt né of kalt. Einnig er þessi völlur alveg frábær, hann er mjög skemmtilegur þar sem hann er í með á sem rennur í gengum hann og það eru hverir þarna. Flestum gekk bara nokkuð vel.
Skor:
Addi: 99
Raggi: 112
Andres: 112
Valli: 119

Seinna hollið var ekki alveg með skorið uppi þegar við töluðum við þá. Held að þeir hafi bara ekki verið eins góðir og við :-P Ég var allaveganna að spila ágætlega þarna nema hvað upphafs höggin varðar. Sem er öfug meðan við það sem ég var að gera síðast þegar við vorm þarna að steggja Ragga. Þá voru það upphafshöggin sem voru í lagi en var að taka 5 – 6 pútt. Núna var ég að slá í boga til hægri alltaf nema kanski á síðustu 3 brautunum, en þá fór ég að taka eftir því að ég var að standa eitthvað öðruvísi en vanalega. Maður þarf að fara til kennara til að reyna verða eitthvað berti í þessu sporti.

Tvíburarnir alveg búinnir að snúa við sólarhringnum.

Monday, August 21st, 2006

Jæja þá held ég að tvibbarnir séu alveg búnnir að snúa við sólarhringnum. Þeir hafa undanfarna dag verið að fara sofa svona milli 23 – 04 og oftast skipts á að vaka frameftir. En núna eru þeir búnnir að sofa í mesta allan dag hjá mömmu sinni sem var í búða rápi að leita af einhverju á þau. Ég vona að þau sofni nú samt fyrir kl. 00:00 annars geng ég af göflunum :D

Wow hákalla árás á CCP

Friday, August 18th, 2006

Já það er kanski smá ýkjur en það var hákall sveimandi um Reykjarvíkurhöfn í allan dag. Hann sást fyrst um kl 10 í morgun en svo náðum við myndum af honum. Finnur náði þessari fínu mynd sem endaði meira að segja í mogganum :D Vel gert Finnur. Þetta er bein hákarl sem er víst bara baby enn því hann er ekki nema um 2.5 – 3 metrar þarna og þeir verða um 12 – 15 metrar :O WOW. Enn það er ekkert að óttast hann gerir eingum mein þar sem hann lifir á svifi og þörungum.

Bein hákarl í Reykjarvíkur höfn

Blog World

Friday, August 18th, 2006

Jæja þá er maður loksins búinn að setja upp blog síðu til að svona halda utan um það sem maður er að gera frá degi til dags. Einnig henda inn hérna upplýsingum um tvíburana.

Svo er bara að vona að maður verði duglegur að skrifa hérna inn eitthvað skemmtilegt.