Archive for September, 2006

Back to the Future

Wednesday, September 27th, 2006

Ég skrapp til mömmu og pabba í kvöld og vitir menn kemur hún mamma ekki með nokkrar gamlar og góðar myndir til mín. Þetta eru myndir frá því að ég var á leikskóla um 4 ára, Flataskóla í 4GS sem var svona um 8 ára og svo eina góða frá 1985 þegar mamma vildi að ég myndi verða módel :-P nei þetta var þegar bróði minn fermdist og fór í mydatöku og fannst sennilega ljósmyndaranum ég svona módel legur :D

Alveg magnað hvað ég man eftir mörgum á þessari mynd. Það vour bara 2 sem ég man ekki eftir og þurfi að kíkja aftan á til að muna hvað 3 hétu en man vel eftir þeim.  Svo er magnað að hann Gunni er í gömlu hundunum sem hittast alltaf á vetrar daginn fyrsta og hella í sig af gömlum vana, einnig hann Hrafnkell að ég er að vinna með honum núna í CCP :D
4 ára

Uppi frá vinstri: Laufey, Rakel, Hrafnkell, Fjóla, Gunni, Jói, Unnur og Sigrún.
Niðri frá vinsti: Ragnheiður, Linda, Þórunn, Ásthildur, Ella Sigga, Inga Birna, Óli Haukur og Gauti.
Kennarar: Jóna og Katrín

Svo erum við Inga Birna, Ásthildur og Ella Sigga hérna:

Krútt

Hr. 1985 :-P Vá hvað ég hefði getað meikað það sem módel!
Mr 1985

Já og svo er önnur mynd hérna sem ég er nokkuð hissa yfir hvað maður er með nöfnin á hreinu. Á þessari var ekki búið að setja nöfnin á þannig að maður hafði ekkert til að svindla. En ég man öll:
4 GS

Kennari: Guðríður
Uppi frá Vinstri: Svenni Reynisson, Einar Mar, Eiríkur Baldur Þorsteinsson, Guðmundur Kárason, Andrés Birkir Sighvatsson, Lúðvík Jónasson, Guðfinnur Sölvi Karlsson.
Miðja frá vinstri: Ragnar Jónasson, Jóhannes, Guðrún Kvaran, Ragna Kvaran, Sigrún, Ásthildur Björnsdóttir, Guðlaugur Á????, Rúnar Páll Sigmarsson.
Niðri frá Vinstri: Eva Willardsen, Eva Úlla, Inga Birna Eiríksdóttir, Sigrún Þorsteinsdóttir, Tryggvi Örn Valsson, Brynjóflur Jón Baldursson, Bjarki Björgúlfson, Selma Björnsdóttir.

Alveg magnað hvað maður man mikið af nöfnunum enn eða vona það gæti verið eitthvað vitlaust en endilega sendið mér leiðréttingar eða viðbætur sem ég hef gleymt.

Það er búið að vera mikið að gera síðustu daganna.

Wednesday, September 27th, 2006

Jæja þá er komið mánuður frá síðasta bloggi og það er eins og það séu svona 3 daga síðan.  Það er allt búið að vera á fullu að gera síðasta mánuðinn.  Ég ætla svona að reyna stykkla á stóru:

Ég var sendur til London að vinna.  Það þurfti að uppfæra svona hinar og þessar vélar úti í og koma domaininu yfir á Windows 2003.  Ég fór út á mánudegi eld snemma og var lentur um 11.00 á Stansted.  Þar fékk ég þennan fína Bens til að keyra vitlausu meginn á veginum, vá hvað það er skrítið en gekk bara alveg rosalega vel.  Það hjálpaði mikið að hafa hann TomTom við hendina til að komast á milli staða.  Ég fór strax upp á hótel til að tékka mig inn en þegar ég átti að strauja Vísa kortið fyrir tryggingu þá mundi ég ekki PIN númerið.  Ég fékk nýtt kort í ár og mundi bara gamla númerið :S  Jæja það er gott að það þurfti ekki fyrir tryggingunni, en ég var í vondum málum þar sem ég var ekki með 1 pund á mér til að kaupa eitthvað að borða né neitt að borða…  Well ég hringdi í hana Önnu Jónu og auðvitað reddaði hún mér nýju PIN en ég fékk það ekki fyrr en á miðvikudeginum.  En það borgar sig stundum að vera sluxi og gera ekki allt alveg strax.  Ég var með nokkra dollara í veskinu síðan ég var á GDC í San Jose.  Well það var nóg fyrir McDonalds :-P
Ég tók því rólega á þriðjudeginum og hætti snemma til að hitta vini mína í London þau Hrund og Tolla í China Town að borða.  Eftir að hafa borðað fínan kínverskan fjölmáltíðar mat fórum við á ComedyStore og sáum The Cutting Edge með Martin Coyote, Andy Parsons, Paul Thorne, Steve Gribbin, Ian Stone og Junior Simpson (nei hann er ekki úr The Simpsons fjölskyldunni hann er svartur).  Þeir voru alveg magnaðir.  Þetta er eiginlega alveg must að fara á The Comedy Store ef maður er í London, þetta er í 3 sinn sem ég fer þarna og það hefur alltaf verið frábært að fara þarna.  Well þegar við komum út þá rákumst við á eingan annan en Eric Idle hann var vel í glasi þannig að maður var ekkert að trufla hann á göngu þarna um miðbæ London.

Well svo bar bara back to work og það var bara unnið frá svona 9.00 til svona á milli 23.00 og 06.00.  Stebbi kom þarna út svo til að hjálpa mér á Miðvikudeginum og það var bara unnið út í eitt.

Þegar ég kom heim á Laugardagskvöldið var ekkert smá gaman að sjá tvibbana eftir svona langan tíma í burtu, þau höfðu stækkað þó nokkuð á þessari rúmu viku.  Enda voru þau að þyngjast um svona 300 g á viku.  Svo var bara að taka frí í vinnunni næstu vikuna og taka til heima.  Við vorum að fara skýra 14 Sept sem er fimmtudagur en það var valið afþví að ég var skýrður þann dag og Amma Þorbjörg heitin átti afmæli þennan dag.  Það var poolað og svitnað alla vikunna.  Við vorum ekki alveg búinn að koma okkur fyrir í húsinu þar sem við vorum bara búinn að vera flutt inn í viku þegar Thelma fór upp á sjúkrahús að fæða littlu krílinn.  Svo eftir að þau komu var svona ekki mikið gert… :D   En þetta heppnaðist bara nokkuð vel því við gengum Mömmu og Pabba ásamt tengdó að koma og hjálpa til við að taka upp út kössum og raða upp, hengja upp myndir, setja upp ljós og spegla, pússa rúður, mála …………. and the list goes on :-P

Þá var komið að því að skýra þessi littlu kríli.  Við vorum búinn að finna nöfnin á þau en vorum ekki alveg búinn að setja það niður 100% nema hvað á þriðjudeginum áttum við að skila þeim inn til bakaranns því hann þurfti að setja það á kökuna.  Þannig að á leiðinni í bílnum var það ákveðið að skýra þau Sindri Logi og Sandra Lísa.  En daginn eftir fékk Thelma smá bakþanka að við værum að gera eitthvað vitlaust og þetta væri alveg ómögulegt.  Bara smá kvíða kast en hún komst fljótt yfir það og þegar athöfninni var lokið vorum við alveg rosalega ánægð með nöfnin á þeim.  Við fengum náttúrulega fjölskyldu prestinn Bolla Pétur Bollason til þess að mæta og skýra, hann hefur nú þegar gift 2 pör, séð um 2 jarðarfarir og skýrt 3 börn í fjölskyldunni.  Hann er alveg frábær prestur svo léttur og segir brandara og vill að það sé fjör í athöfninni, ekki þetta sterilt umhverfi þar sem maður má varla hósta.  Svo var bara komið heim og smá veirsla haldinn.

Eftir þessa viku var haldið áfram á sömu braut vinna, skipta á bleyjum, svæfa, skipta á bleyjum, vinna, skipta á bleyjum, skipta á bleyjum og vinna.  Það var rosalega mikið að gera í vinnunni enda einn hættur hjá okkur sem var nýráðinn inn til að leysa mig mikið af hólmi við uppsettningar á vélum og notenda þjónustu.  Svo voru menn í fríi og við að bæta við fólki í fyrirtækið alveg á fullu.  Maður þarf að fara lengja þennan sólarhring eða stytta svefntíman sinn en það er svo sem ekki option.

Jæja þetta var nú svona það helsta sem hefur gerst síðasta mánuðinn og mun ég reyna að hafa ekki aftur mánuð á milli blogga.

Kveðja The Mökk