Archive for September, 2007

Það kom aðþví

Tuesday, September 18th, 2007

Já tíminn er kominn þar sem Sindri og Sandra fara að detta of fá kúlur. Það hefur nú verið í nokkrun tíma en það kemur núna þar sem þau eru farinn að príla upp á allt og detta niður. Eins eru þau farinn að hlaupa frekar hratt og ekki alveg að ná því að stjórna ferðinni eins og sjá má :D
Sandra Sandra Sandra Sindri

Sindri þarf nú að fá að vera með líka :P

Það hlaut að koma að því að einhver fékk meira en smá mar, Sandra datt á kannt á skáp. Við bara settum svona smá plástur til að reyna að loka saman skurðinum. Sem betur fer opnaðist þetta ekki og blæddi annars hefði þurft að sauma hana.

Já það er nóg að gera hjá þeim Tvibbum og mömmu heima til því Pabbinn í fullri vinnu og farinn í skólan loksins. Það á að klára núna að taka MCSA eða eins og þetta heitir Microsoft Certified Systems Administrator hjá Rafiðnaðarskólanum. Þetta er bara fjörugt nám og gaman að fara yfir þetta allt saman. Við erum eins og er í XP áfanganum og er hann nú nokkuð auðveldur eins og er því maður hefur nú unnið við þetta síðan það kom út. En maður er nú farinn að riðga aðeins því maður er búinn að vera keyra Vista núna eftir að það kom út í Beta. Vá hvað það er miklu flottara og betra þó svo að það sé alltaf svona smáhlutir sem fara í taugarnar á manni en eftir að maður venst öllu þessu nýja þá getur maður ekki hugsað sér að fara til baka.

Jæja nóg í bili. Maður verður að hafa eitthvað til að tala um í næsta bloggi sem verður einhvertíman 2008 ef ég þekki þetta rétt ;)

Kv
Drezi, Thelma og La Twins