úffff… það eru kominir all margir mánuðir síðan ég skrifaði síðast hérna. Það er nú allt búið að vera á fullu líka bæði í vinnunni og heima við. Tvibbarnir gera ekkert nema stækka og læra nýja hluti á fullu.
Það helsta er að vinnan heldur áfram að stækka og stækka held að við séum orðin um 180 núna með Akrueyri, Atlanta og Shanghai skriftofunum. Fyrir um rúmlega ári síðan vorum við um 60
þetta er algert rugl bara. Ãlagið eykst og eykst á okkur þarna í IT deildinni og ekki margir nýjir að koma inn, en eigum von á einum núna á næstunni. Svo er nú ég að fara í feðra orlof á næstunni :S hvernig fer þá….
Tvibbarnir eru á fullri leið að fara fermast
þau eru orðinn svona xx á hæð og um 8 kg. Þetta gerist svo hratt, maður er ekki að trúa því að þeir séu að verða 8 mánaða núna.
Svona til að fara yfir söguna aðeins þá hefur allt svona gegnið nokkuð vel það sem var af 2006, þau voru alveg óvenjulega hress og kát eins og alltaf. Það koma jú þessir tímar sem þau eru svöng og þreytt þannig að það getur tekið smá á að vera með þau tvö grátandi ef maður er einn með þau. Sem betur fer hefur Thelma haft foreldra sína til að hjálpa sér á daginn þegar mest gengur á.
Svo kom desember og fystu jólinn gengu í garð. Það var aldeilis kátt á aðfangadag hjá þeim þau fengu góðan svefn fyrir matinn og sátu svo kát og hlægjandi allt kvöldið til svona að ganga 22.00. Það var margt um manninn líkja hjá okkur, við fengum Ömmur og Afa og Langömmu Karen til okkar í mat. Það vildu auðvitað allir vera hjá þeim á fyrstu jólunum og sjá þau í jólasveina búningunum sem við keyptum á þau
þau eru svo mikil krútt. Maður bíður bara eftir því að þau viti hvað er að gerast og þá verður sennilega fjör á bænum.
Ekki var þetta svona kátt lengi því á annan í jólum fékk Sandra Lísa mikinn hita og kvef og var hitinn að fara vel yfir 39°c. Sindri Logi fékk þetta svo í kjölfarið nema hann var að fara upp í 40°c hita og miklu verri. Við ákváðum að fá lækni á staðinn og þá var hann greindur með eyrnabólgu
þannig að hann fékkk sýklalyf við því. Ekki var það nú betra þar sem littla greið fékk ofnæmi fyrir þvi og eftir 3 daga kominn með útbrot um allan líkaman. Þannig að við urðum að hætta að gefa honum lyfið,lækirinn vildi svo að hann myndi bara reyna ná þessu sjálfur úr sér. En ekki gekk það eins og áður og fékk hann aftur mikinn hita og það vesta var að Sandra var kominn með hita líka aftur og mjög slöpp. Það versta var að ég var líka með bullandi hita, beinverki, ógleði, þreytu og hvað annað sem hægt er að fá þegar maður er veikur. Málið var að ég var sendur til London að setja nýtt IBM Blade í samband til að gera smá prófanir á þvi og tók ég það með mér í handfarangri í flugið og setti það upp sama dag og flaug heim daginn eftir. Nema hvað ég var svona að verða smá kvefaður og í fluginu næ ég ekki að þrýstijafna eyrun og fékk þessa rosalegu hellu. Ég var með kanski svona 40% heyrn og var Thelma að verða vitlaus á því að tala við mig
Þannig að eftir að ég er búinn að liggja og sofa í 20 tíma þá förum við öll til læknis. Þá kemur í ljós að Sindri er enn með erynabólgu og Sandra Lísa hefur fengið það líka. Þannig að þau fá aftur sýklalyf, 3 hans Sinda og 2 hjá Söndru. Svo var komið að mér og þá kemur það í ljós að ég er einnig með eyrnabólgu
þetta gat ekki verið fyndnara, þannig að Pabbinn var líka settur á slyklalyf. Aumingja Thelma að vera með okkur 3 öll slöpp og ómöguleg…. ég sofandi mest og þau svona mikið grátandi og erfitt með að sofa.
Jæja þetta svona slóg á okkur öll, nema í dag fórum við til háls, nef og eyrna sérfræðings og þá kom það í ljós að Sandra Lísa og ég erum laus við eyrnabólguna en Sindri Logi er enn með smá bólgur. Læknirinn kíkti svo aðeins á mig betur og sá að ég er svo stýflaður í nefinu að hann átti ekki til orð, og mér sem fannst ég vera svo góður
… ég á að fara á smá stera kúr (Flixonase) og svo koma til hans aftur eftir mánuð.
Jæja vonum að þetta lagist allt saman. Þau allaveganna eru mjög góð núna og alveg eru að stækka og læra nýtt á hverjum degi það er alveg rosalega gaman að fylgjast með þeim. Þau eru farinn að skríða, setjast upp, biðja um að láta taka sig upp og margt meira. Svo er bara svo gaman aðþví hvað þeim finnst gaman að hvort öðru. Hérna er smá video af þeim: Tvibbar2007
úff það eru 1.5 mánuður eða svo sÃðan ég skrifaði þetta en ætlaði að setja inn myndir af þeim með og það gekk ekki greinilega. Best að setja þetta inn núna og bara skrifa meira….