Já það er kanski smá ýkjur en það var hákall sveimandi um Reykjarvíkurhöfn í allan dag. Hann sást fyrst um kl 10 í morgun en svo náðum við myndum af honum. Finnur náði þessari fínu mynd sem endaði meira að segja í mogganum
Vel gert Finnur. Þetta er bein hákarl sem er víst bara baby enn því hann er ekki nema um 2.5 – 3 metrar þarna og þeir verða um 12 – 15 metrar :O WOW. Enn það er ekkert að óttast hann gerir eingum mein þar sem hann lifir á svifi og þörungum.
