Svaka fjör í Hvítá með CCP

Það var farið í óvissu ferð með CCP í gær. Dagurinn bara tekinn snemma eða byrjað með alsherja fundi þar sem tala var um svona það sem er að gerast í CCP í dag og það sem er framundan. Mjög spennandi hlutir að gerast þessa daganna í CCP. Allt fyrirtækið að sækka og breyða út arma sína til fleirri landa.

Svo var farið í myndatöku úti á götu. Það var búið að spreyja CCP á götunna og áttum við að dreifa okkur á stafina og stafa CCP á meðan ljósmyndari tók mynd af okkur ofan af þaki. Þessi mynd heppnaðist mjög vel og þarf ég að redda henni hingað inn. Annars leið manni eins og maður væri að vinna í banka :P

Svo var farið upp í rútur og haldið á Drumboddstaði þar sem Bátafólkið var en Arcticrafting er komið með allt rafting held ég bara. Þeir eru líka alveg frábærir. Farið var niður ánna og vorum við með 6 eða 8 báta úti enda um 80 manns minnir mig CCP Raftingsem voru þarna. Þetta byrjaði nokkuð vel fanst mér þar sem 3 duttu út úr báttnum í öðrum flúðunum og fór báturinn nokkuð stjórnlaust niður þá :D Sennilega eitt skemmtilegasta móment sem ég hef verið í þegar verið er í flúðum, Fightþær eru ekkert spec annars. Maður á eftir að prófa almennilega á til að svona segja betur til um þessar blessuðu flúðir.

Næst var farið og hoppað niður af klett út í ánna. Það var þokkalega skemmtilegt og held ég að flest allir hafi látið sig flakka niður og flestir nokkrum sinnum. Merkilegt hvað áin var heit. Þetta er nú 4 sinn sem ég fer í hvítá og hef ég lent einusinni þegar hún var svo köld að maður gat bara ekki farið út í hana en það var um 18 stiga hiti þarna og búið að vera gott veður síðustu daga. Það getur bara verið 3 – 4 gráðu munur á ánni ef það er búið að vera gott veður.

Þegar búið að var að hoppa út í ánna þá byrjaði vatnsslagurinn. FloatingÉg var í fysta bátnum að kára flúðirnar og vildi ég byrja á þvi að róa upp að næsta báti sem koma og reyna að henda mér yfir í bátinn og taka einhvern með mér útí. En ég lenti ferkar illa og mér var kastað út fyrir borði. Svo driftaði ég í burtu frá bátunum og komst ég ekki upp í bát næstu nokkrar mínúturnar. En það skiput nú ekki miklu máli þar sem ég var sennilega meira úti í ánni en í bátnum þarna síðustu kílómetrana niður ánna. Enda fékk ég svaka kulda krampa í kálfanna og á tímabili gat ég ekki hreyft kálfan vinstrameginn.

Þegar við komum upp út ánni var manni frekar kalt. Reyndi að fara í kuldapottinn en hann var um 27 gráður og fannst mér hann kaldari en áinn. Það var nú bara betra að fara og klæða sig. Þegar allir voru komnir í fötinn þá var haldið niður á Stokkreyri og borðaðir humarhalar. Frekar góðir humrar og við fengum svo mikið að við gátum ekki klárað þá. mmmmmmmmmmmmm

Svo var haldið heim á leið og á meðan sumir héldu áfram að djamma þá fóru hinir heim að sofa, djö er maður orðinn gamall….. uuu eða ábyrgur faðir ;-)

Leave a Reply

This is a captcha-picture. It is used to prevent mass-access by robots. (see: www.captcha.net)

You must read and type the 5 chars within 0..9 and A..F, and submit the form.

  

Oh no, I cannot read this. Please, generate a