Það er búið að vera mikið að gera síðustu daganna.

Jæja þá er komið mánuður frá síðasta bloggi og það er eins og það séu svona 3 daga síðan.  Það er allt búið að vera á fullu að gera síðasta mánuðinn.  Ég ætla svona að reyna stykkla á stóru:

Ég var sendur til London að vinna.  Það þurfti að uppfæra svona hinar og þessar vélar úti í og koma domaininu yfir á Windows 2003.  Ég fór út á mánudegi eld snemma og var lentur um 11.00 á Stansted.  Þar fékk ég þennan fína Bens til að keyra vitlausu meginn á veginum, vá hvað það er skrítið en gekk bara alveg rosalega vel.  Það hjálpaði mikið að hafa hann TomTom við hendina til að komast á milli staða.  Ég fór strax upp á hótel til að tékka mig inn en þegar ég átti að strauja Vísa kortið fyrir tryggingu þá mundi ég ekki PIN númerið.  Ég fékk nýtt kort í ár og mundi bara gamla númerið :S  Jæja það er gott að það þurfti ekki fyrir tryggingunni, en ég var í vondum málum þar sem ég var ekki með 1 pund á mér til að kaupa eitthvað að borða né neitt að borða…  Well ég hringdi í hana Önnu Jónu og auðvitað reddaði hún mér nýju PIN en ég fékk það ekki fyrr en á miðvikudeginum.  En það borgar sig stundum að vera sluxi og gera ekki allt alveg strax.  Ég var með nokkra dollara í veskinu síðan ég var á GDC í San Jose.  Well það var nóg fyrir McDonalds :-P
Ég tók því rólega á þriðjudeginum og hætti snemma til að hitta vini mína í London þau Hrund og Tolla í China Town að borða.  Eftir að hafa borðað fínan kínverskan fjölmáltíðar mat fórum við á ComedyStore og sáum The Cutting Edge með Martin Coyote, Andy Parsons, Paul Thorne, Steve Gribbin, Ian Stone og Junior Simpson (nei hann er ekki úr The Simpsons fjölskyldunni hann er svartur).  Þeir voru alveg magnaðir.  Þetta er eiginlega alveg must að fara á The Comedy Store ef maður er í London, þetta er í 3 sinn sem ég fer þarna og það hefur alltaf verið frábært að fara þarna.  Well þegar við komum út þá rákumst við á eingan annan en Eric Idle hann var vel í glasi þannig að maður var ekkert að trufla hann á göngu þarna um miðbæ London.

Well svo bar bara back to work og það var bara unnið frá svona 9.00 til svona á milli 23.00 og 06.00.  Stebbi kom þarna út svo til að hjálpa mér á Miðvikudeginum og það var bara unnið út í eitt.

Þegar ég kom heim á Laugardagskvöldið var ekkert smá gaman að sjá tvibbana eftir svona langan tíma í burtu, þau höfðu stækkað þó nokkuð á þessari rúmu viku.  Enda voru þau að þyngjast um svona 300 g á viku.  Svo var bara að taka frí í vinnunni næstu vikuna og taka til heima.  Við vorum að fara skýra 14 Sept sem er fimmtudagur en það var valið afþví að ég var skýrður þann dag og Amma Þorbjörg heitin átti afmæli þennan dag.  Það var poolað og svitnað alla vikunna.  Við vorum ekki alveg búinn að koma okkur fyrir í húsinu þar sem við vorum bara búinn að vera flutt inn í viku þegar Thelma fór upp á sjúkrahús að fæða littlu krílinn.  Svo eftir að þau komu var svona ekki mikið gert… :D   En þetta heppnaðist bara nokkuð vel því við gengum Mömmu og Pabba ásamt tengdó að koma og hjálpa til við að taka upp út kössum og raða upp, hengja upp myndir, setja upp ljós og spegla, pússa rúður, mála …………. and the list goes on :-P

Þá var komið að því að skýra þessi littlu kríli.  Við vorum búinn að finna nöfnin á þau en vorum ekki alveg búinn að setja það niður 100% nema hvað á þriðjudeginum áttum við að skila þeim inn til bakaranns því hann þurfti að setja það á kökuna.  Þannig að á leiðinni í bílnum var það ákveðið að skýra þau Sindri Logi og Sandra Lísa.  En daginn eftir fékk Thelma smá bakþanka að við værum að gera eitthvað vitlaust og þetta væri alveg ómögulegt.  Bara smá kvíða kast en hún komst fljótt yfir það og þegar athöfninni var lokið vorum við alveg rosalega ánægð með nöfnin á þeim.  Við fengum náttúrulega fjölskyldu prestinn Bolla Pétur Bollason til þess að mæta og skýra, hann hefur nú þegar gift 2 pör, séð um 2 jarðarfarir og skýrt 3 börn í fjölskyldunni.  Hann er alveg frábær prestur svo léttur og segir brandara og vill að það sé fjör í athöfninni, ekki þetta sterilt umhverfi þar sem maður má varla hósta.  Svo var bara komið heim og smá veirsla haldinn.

Eftir þessa viku var haldið áfram á sömu braut vinna, skipta á bleyjum, svæfa, skipta á bleyjum, vinna, skipta á bleyjum, skipta á bleyjum og vinna.  Það var rosalega mikið að gera í vinnunni enda einn hættur hjá okkur sem var nýráðinn inn til að leysa mig mikið af hólmi við uppsettningar á vélum og notenda þjónustu.  Svo voru menn í fríi og við að bæta við fólki í fyrirtækið alveg á fullu.  Maður þarf að fara lengja þennan sólarhring eða stytta svefntíman sinn en það er svo sem ekki option.

Jæja þetta var nú svona það helsta sem hefur gerst síðasta mánuðinn og mun ég reyna að hafa ekki aftur mánuð á milli blogga.

Kveðja The Mökk

3 Responses to “Það er búið að vera mikið að gera síðustu daganna.”

  1. Frankie says:

    Hello! Please e-mail me your contacts. I have a question zachary@complective.ru” rel=”nofollow”>……

    Thanks!…

  2. CURTIS says:

    PillSpot.org. Canadian Health&Care.No prescription online pharmacy.Special Internet Prices.PillSpot.org. Herbal-supplements@buy.online” rel=”nofollow”>.…

    Categories: Stomach.Mens Health.Antidiabetic.Blood Pressure/Heart.Anxiety/Sleep Aid.Antidepressants.Stop SmokingWomens Health.Antiviral.Weight Loss.Skin Care.Antibiotics.Pain Relief.Mental HealthVitamins/Herbal Supplements.Eye Care.Anti-allergic/A…

Leave a Reply

This is a captcha-picture. It is used to prevent mass-access by robots. (see: www.captcha.net)

You must read and type the 5 chars within 0..9 and A..F, and submit the form.

  

Oh no, I cannot read this. Please, generate a