Tvíburarnir “Birkir og Ögn”
Eftir að hafa gegnið í 38 vikur og 5 daga þá komu tvíburar í fjölskylduna þann 27.06.2006 á fæðingardeild kvennadeilar Landsspítala Reykjavíkur, Birkir kom fyrst kl. 01:48 og síðan Ögn kl. 01:49. Við vorum bæði 2855g, 48cm á lengd og 35cm höfuðmál.
Já þetta var búið að vera nokkuð strembnar 38 vikur en með svona hápunktum og lágpunktum. Við fréttum þetta nokkuð snemma og í fyrsta sónar þá var það ljóst að þetta væru tvíburar. Við ákváðum að segja ekki neinum frá því að við værum ólétt fyrr en á þriðja mánuði. Thelma var svona nokkuð að springa að segja einhverjum frá, það er eitthvað með kvennfólk og þetta kjaftagen
En ég náði að halda því niður í henni og þegar þriggja mánaða skoðunin var búinn ákváðum við að segja mömmu og pabba okkar frá þessu. Við buðum þeim í mat og þegar við vorum að fara að borða eftir rétt náði ég í myndavél og þegar ég var að fara smella sagði ég allir segja Thelma er ólétt. Það kom nún smá bíð og svo fór fattarinn í gang. Allir voru rosa ánægðir. Thelma vildi segja þeim að þetta væru tvíburar en ég náði að telja hana trú um að við ættum að halda því leyndu lengur. Helst vildi ég að við myndum ekki segja þeim neitt fyrr en bara þegar þau myndu koma á fæðingardeildina og sjá okkur með sínhvort barnið í hendinni ![]()
Við héldum þessu áfram leyndu, en morgunógleðinn byrjaði bara á fyrstu 3 vikunum eða svo og bumban fór að stækka frekar mikið. Allir voru að spyrja hvort þetta væru nokkuð tvíburar, en við neituðum öllum alltaf. Thelma var alltaf að tala um að hún yrðu að segja einhverju frá þessu en ég náðu að segja henni að það væri miklu skemmtilegra bíða með það.
Það var svo á viku 20 eftir að við vorum búinn að fara í sonar að við ákváðum að segja mömmu og pabba okkar frá því að það væru tvö börn.
Við ákváðum að bjóða mömmu og pabba í mat ein og síðast þegar við sögðum þeim að við værum ólétt. Við buðum þeim aftur í mat og þegar var komið að eftirréttinum þá þá ákváðum við að sýna þeim þetta á svona frekar óvenjulegan hátt. Ég fór og náði í kerruna sem ég keypti í London og eins og sjá á myndinni er þetta frekar augljóslega tvíburakerra
Ég tók kettina okkar og setti í sínhvort hólfið og keyrði fram þar sem þau voru að borða. Þegar ég kem fram þá lýta allir upp og segja “já rosalega flott” og svo kom svona einginlega spurnginamerki á öll. Ég var búinn að segja þeim að þetta væir kerra sem væri með bílstól sem hægt væri að setja á kerruna og beint svo í docking stöð i bílinn. Þannig að þau byrjuðu að reyna að fatta hvernig þetta væri:
“Já þetta er svona þannig að það er hægt að snúa þeim saman og loka yfir”
“Já sætið þarna fyrir framan er til að taka af og setja í bílinn.”
“Já þetta er svona…… nei”
“Er þetta ekki svona tvíburakerra…….”
Svo komu bara meira og meira af kommentum um hvernig þessi kerra virkaði. Ég og Thelma bara horðum á hvort annað og trúðum því ekki að þau föttuðu þetta ekki. Þegar það voru liðnar svona 4 mínútur þá sagði ég þetta er ekki til að taka kettina með í labbi túr og Thelma sagði stuttu eftir já það eru tvö og svona um 20 sec þá föttuðu þau að það væru tvö börn. Þetta var alveg “killer moment” ég sé eftir því að hafa ekki stillt upp video vél einhverstaðar til að taka þetta upp.
Eftir þetta þá fóru svona allir að heyra þetta og áður en maður vissi þá var þetta komið út um allt. Samt vorum við ekkert að segja öllum frá þvi að það væru tvö en það fréttist þegar Thelma kom fram í sonar í Fyrstu Skrefin á Skjá einum.
…. meira síðar……